Það var allskonar veður í boði á meistaramóti Golfklúbbs Vestmannaeyja sem fram fór dagana 11. til 14. júlí. Verðlaunaafhending fór fram í gærkvöldi og voru það Daníel Ingi Sigurjónsson og Katrín Harðardóttir sem krýnd voru Vestmanneyjameistarar.
Gríðarleg spenna um efstu sætin Æsispennandi keppni var meðal þriggju efstu manna í meistarflokki karla þeirra Daníels Inga Sigurjónssonar og Lárusar Garðars Long. Að lokum var það bara eitt stig sem skildi á milli þeirra. Var það frábær síðasti hringur Daníels sem tryggði honum sigurinn. Lárus Garðar endaði í öðru og Gunnar Geir Gústafsson í þriðja.
Í kvenna flokki var ekki minni spenna en þar enduðu þær Elsa Valgeirsdóttir og Katrín Harðardóttir jafnar af stigum eftir lokahring. Kastað þurfti upp hlutkesti til að skera úr sigurvegara og hlaut Katrín hnossið.
Í háforgjafarflokki kvenna var sama spennan en þar hafði Unnur Sigmarsdóttir eitt stig á Hörpu Gísladóttir og sigraði því.
Í fyrsta flokki karla sigraði Brynjar Smári Unnarsson. Rúnar Gauri Gunnarsson í 2. flokki og Karl Jóhann Örlygsson í þeim þriðja.
Í flokki karla ára og eldri var það Guðjón Grétarsson sem hafði sigur úr býtum. Í öldungaflokki 70 ára og eldri sigraði Kristján Gunnar Ólafsson.
Okkar maður Óskar Pétur lét sig að sjálfsögðu ekki vanta á verðlaunaafhendinguna í gærkvöldi og má sjá myndir þaðan hér að neðan.