Dregið var í fyrstu umferðir í Evrópukeppni félagsliða, EHF-bikarsins, í handbolta í dag. Þrefaldir meistarar ÍBV sitja hjá fyrstu umferðina og koma beint inn í aðra. Þar munu þeir mæta Pays d’Aix Université Club handball eða PAUC frá Frakklandi.

Fyrri leikurinn fer fram heima 6. eða 7. október en síðari leikurinn í Frakklandi 13. eða 14. október.