Nýtt skip Ísfélagsins Ottó N. Þorláksson VE-5 er væntanlegt á morgun, fimmtudag til hafnar í Vestmannaeyjum úr sinni fyrstu veiðiferð í eigu Ísfélagsins. Að lokinni löndun verður skipið til sýnis fyrir áhugasama á milli kl. 14 og 16 og eru allir velkomnir.

Ottó N. Þorláksson var síðast í eigu HB Granda og var smíðaður árið 1981 í Garðabæ.