Subway mun loka veitingastað sínum í Vestmannaeyjum frá og með 11. ágúst n.k. Staðurinn hefur verið ágætlega sóttur af Vestmannaeyingum í þau 6 ár sem hann hefur verið opinn. Við höfum eignast fjölmarga fasta viðskiptavini í eyjum og erum þakklát öllum þeim Vestmannaeyingum sem hafa verslað við okkur í gegnum tíðina.
Staðurinn hefur gengið vel á sumrin, en minna hefur verið að gera á veturna. Á ársgrundvelli hefur rekstrareiningin ekki verið nógu hagkvæm eða stór til þess að réttlæta áframhaldandi rekstur.
Við kveðjum eyjar í bili með söknuði og vonum að eiga afturkvæmt þangað fyrr en seinna.