Arnar Pétursson

Það þarf vart að kynna Arnar Pétursson fyrir Eyjamönnum en hann er sonur hjónanna Guðbjargar Sigurgeirsdóttur og Péturs Steingrímssonar. Arnar hefur átt farsæl ár með meistaraflokki karla í handbolta hjá ÍBV síðustu misseri og fyrir þjálfunina átti hann farsælan feril sjálfur í handbolta. Hann hefur nú lagt skóna á hilluna og kláraði síðasta tímabilið sem þjálfari með stæl. Hann settist niður með blaðamanni á dögunum til að fara yfir ferilinn sem leikmaður og þjálfari. Viðtalið birtist í nýjasta tölublaði Eyjafrétta.

Frelsi er það sem kemur fyrst upp í hugann á Arnari þegar hann minnist æskunnar í Vestmannaeyjum og segir að það hafi verið íþróttir daginn út og daginn inn, „fyrst var það fótbolti á Stakkó eða á skólalóðfafi verið ðinni, svo þegar búið var að tyrfa Týsvöllinn fórum við þangað líka. Þannig lífið snerist um íþróttir,“ sagði Arnar. Aðspurður sagðist Arnar hafa byrjað að fikta við handboltann um ellefu ára. „Þá fengum við félagarnir, ég og Gunnar Berg að fara á æfingu hjá yngsta flokknum sem var þá í handboltanum, undir stjórn Bigga Sveins. Við vorum einu ári yngri en fengum að fljóta með.“ 

Efni á þessari síðu er aðeins fyrir áskrifendur. Vinsamlegast skráðu þig inn til að lesa meira eða gerast áskrifandi.

Existing Users Log In