Fiskafli ís­lenskra skipa í júlí­ var 93.551 tonn sem er 27% meira en í júlí í fyrra. Botn­fiskafli í mánuðinum var rúm 34 þúsund tonn og er það tæp­um 5 þúsund tonn­um meira en í júlí í fyrra. Þetta kem­ur fram í frétt á vef Hag­stof­unn­ar.

Af botnfisktegundum veiddist mest af þorski eða tæp 20 þúsund tonn sem er 16% aukning samanborið við júlí 2017. Rúm 5.000 tonn veiddust af ufsa, 4.611 tonn af karfa og 3.555 tonn af ýsu. Uppsjávarafli nam tæpum 54 þúsund tonnum sem er 37% meiri afli en í júlí 2017. Kolmunni og makríll voru uppistaðan í uppsjávaraflanum en um 25 þúsund tonn veiddust af hvorri tegund. Skel- og krabbadýraafli nam 1.912 tonnum samanborið við 1.626 tonn í júlí 2017.

Heildarafli á 12 mánaða tímabili frá ágúst 2017 til júlí 2018 var tæplega 1.286 þúsund tonn sem er 11% samdráttur miðað við sama tímabil ári fyrr.

Verðmæti afla í júlí metið á föstu verðlagi var 15% meira en í júlí 2017.