Sannfærandi sigur í Grindavík

ÍBV sótti Grindavík heim í leik í 16. umferð Pepsi-deildar kvenna í dag. Eyjastúlkur byrjuðu af miklum krafti og eftir aðeins 4 mínútu leik kom Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir ÍBV yfir. Þrátt fyrir að ÍBV hefði öll völd á vellinum náðu Grindvíkingar að jafna úr víti á 14. mínútu. Rut Kristjánsdóttir kom ÍBV hinsvegar aftur yfir […]
Sigríður Lára skoraði fyrir Lillestrøm

Sigríður Lára Garðarsdóttir skoraði sitt fyrsta mark fyrir Noregsmeistara Lillestrøm í 4:1-sigri gegn Avaldsnes í efstu deild Noregs í fótbolta í dag. Hún gulltryggði sigurinn með fjórða markinu á 89. mínútu af stuttu færi eftir hornspyrnu. Sigríður Lára kom inn á sem varamaður á 73. mínútu og skoraði korteri síðar. Lillestrøm er með mikla yfirburði í […]
Vodafone gámurinn ónýtur eftir grjóthrun

Í nótt féll grjót á gám Vodafone sem stendur í gryfjunni við Hástein. Miklar skemmdir urðu á gáminum og samkvæmt heimildum Eyjafrétta eru starfsmenn Geisla að bíða eftir leyfi til þess að fá að fara og vinna í gámnum. Ljósmyndari Eyjafrétta Óskar Pétur Friðriksson tók þessar myndir. (meira…)