Sig­ríður Lára Garðars­dótt­ir skoraði sitt fyrsta mark fyr­ir Nor­egs­meist­ara Lillestrøm í 4:1-sigri gegn Avalds­nes í efstu deild Nor­egs í fót­bolta í dag. Hún gull­tryggði sig­ur­inn með fjórða mark­inu á 89. mín­útu af stuttu færi eft­ir horn­spyrnu.

Sig­ríður Lára kom inn á sem varamaður á 73. mín­útu og skoraði kort­eri síðar. Lillestrøm er með mikla yf­ir­burði í deild­inni og með 17 stiga for­skot á Klepp sem er í öðru sæti.

Svava Rós Guðmunds­dótt­ir lék all­an leik­inn fyr­ir Røa í 4:3-útisigri á Lyn. Røa er í fimmta sæti með 26 stig.

Mbl.is greindi frá