Ian Jeffs

Ian Jeffs er hættur sem þjálfari kvennaliðs ÍBV en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net.

Samningur Jeffs er að enda og hann ætlar ekki að framlengja hann.

Jeffs hefur þjálfað ÍBV undanfarin fjögur tímabil en í ár endaði liðið í 5. sæti í Pepsi-deildinni.

Í fyrra varð ÍBV bikarmeistari undir stjórn Jeffs en liðið fór einnig í bikarúrslit árið 2016.

Í íslenskum slúðurpakka á Fótbolta.net var Ian Jeffs nefndur til sögunnar sem mögulegur arftaki Kristjáns Guðmundssonar ef hann hættir sem þjálfari karlaliðs félagsins.

Jeffs spilaði sjálfur á miðjunni hjá ÍBV í áraraðir en síðasti leikur hans með liðinu var árið 2016.