Næstkomandi föstudagskvöld 12. október kemur saman á Háaloftinu föngulegur hópur íslenskra tónlistarmanna og flytja tónlist Fleetwood Mac, einnar allra vinsælustu hljómsveitar rokksögunnar.

Eiður leikur tónlist Fleetwood Mac í Hörpu.

Ferli Fleetwood Mac má gróflega skipta í tvennt. Upphafstímabilið þar sem blústónlistin var allsráðandi og höfuðpaur sveitarinnar, hinn magnaði Peter Green réð ríkjum, og svo tímabilið sem hófst þegar Stevie Nicks og Lindsey Buckingham gengu í hljómsveitina. Hljómplatan Rumours kom út árið 1977 og sló sannarlega í gegn því hún sat í efsta sæti Billboard listans í Bandaríkjunum samfleytt í 7 mánuði. Rumours er fjórða söluhæsta hljómplata sögunnar og hefur selst í meira en 45 milljónum eintaka enda inniheldur hún ódauðleg lög eins og Don’t Stop, Dreams, Go Your Own Way, Songbird og Second Hand News.

„Við höfum haldið tónleika sem þessa víðsvegar um landið undanfarin ár við frábærar undirtektir, en alltaf átt Eyjarnar eftir. Og það er eiginlega bara ekki hægt að hætta þessu nema að bjóða Eyjamönnum að mæta,” sagði Eyjapeyinn Eiður Arnarsson í spjalli við Eyjafréttir. En þetta verður í síðasta sinn sem þessi hópur kemur saman til að flytja Rumours og bestu lög Fleetwood Mac.

Eiður leikur á bassa með hljómsvetinni, aðrir meðlimir eru Sigfús Óttarsson á trommur, Kjartan Valdemarsson á hljómborð og Kristján Grétarsson á gítar. Um sönginn sjá svo þau Ragnheiður Göndal, Sigríður Thorlacius, Magni og Margrét Eir.
„Á tónleikunum flytjum við meistaraverkið Rumours í heild sinni ásamt úrvali vinsælustu laga Fleetwood Mac. Má þar nefna Little Lies, Black Magic Woman, Hold Me, Seven Wonders, Gypsy, Big Love og Rhiannon.” sagði Eiður að lokum. En hann hlakkaði mikið til að flytja þessa tónlist heima í Eyjum, þar sem hann heyrði hana fyrst.

Áhugasamir geta nálgast miða á tix.is og í Tvistinum í Eyjum.

fös12okt22:00Hætt við viðburðHáaloftið: Fleetwood Mac – Rumours og öll bestu lögin22:00