Líkt og fyrri ár verður Uppskeruhátíð pysjueftirlitsins haldin fyrstu helgina í nóvember, á Safnahelgi. Í ár voru teknar yfir 7500 ljósmyndir enda hefur fjöldi pysja í eftirlitinu aldrei verið meiri og settum við nokkur heimsmet í ár!

Sýningin opnar föstudaginn 2. nóvember klukkan 15 og verður opin alla helgina, opnunartími er sem hér segir;
Föstudagur 2. nóv: 15-18
Laugardagur 3. nóv: 13-16
Sunnudagur 4. nóv: 13-16