Vegagerðin hefur samið við fyrirtækið Björgun um dýpkun Landeyjahafnar. Samningur Vegagerðarinnar og Björgunar er fyrir árin 2019 til 2021. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni leggur Björgun til skipin Dísu, Pétur mikla, Reyni og Sóleyju til dýpkunar Landeyjahafnar, þessu greindi visir.is frá.

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri sagði í samtali við Vísir að hún óttist að tækjakostur fyrirtækisins sé ekki nógu öflugur til verksins, „Þetta snýr ekkert bara að Björgun, þetta snýr að því að sporin hræða. Við höfum verið með fyrirtæki sem hefur tækjakost til þess að gera þetta. Áhyggjurnar snúa að því hvort það er tækjakostur sem þarf til að dýpka hratt og vel til staðar. Við höldum ekki,“ sagði Íris í samtali við Vísir.is

Vegagerðin samdi við lægstbjóðanda sem var Björgun, en þeir buðu um 618 milljónir króna í verkið og Jan De Null 1180 milljónir. G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir að reynslan sýni að Björgun hafi opnað höfnina á svipuðum tíma og Jan De Null. Tækjabúnaður erlenda fyrirtækisins hafi verið metinn betri en á móti komi að Björgun hafi sýnt að fyritækið getið dýpkað við erfiðari aðstæður.