ÍBV semur við markmann og markaskorara

0
ÍBV semur við markmann og markaskorara

Skrifað var undir samninga við tvo leikmenn sem munu ganga í raðir ÍBV fyrir næsta tímabil og spila með meistaraflokki karla.

Jonathan Glenn skrifaði undir samning við ÍBV sem gildir út árið 2020. Glenn kom fyrst til félagsins árið 2014 og fór héðan til Breiðabliks, hann spilaði hjá Fylki á nýafstöðnu tímabili þar sem hann lét 14 leiki og skoraði 7 mörk.  ÍBV bindur miklar vonir við þennan markaskorara.

Einnig hefur ÍBV samið við Rafael Veloso til tveggja ára, Rafael er 25 ára markmaður frá Portúgal. Hann ólst upp í Sporting akademíunni, og á að baki 23 leiki með yngri landsliðum Portúgal. Við erum spennt fyrir komandi tímabili og er Rafael mikill styrkur fyrir lið ÍBV.