þann 22. nóvember 2018 kom hópur manna úr Lionsklúbbi Vestmannaeyja á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum og færði stofnunni tækjagjöf.

Um er að ræða fjölþjálfa af gerðinni Nustep T5XR og æfingabekk af gerðinni Follo Diem 3Section.  Heildarverðmæti gjafarinnar er 1.400.000.

Tækin er kærkomin viðbót í tækjasal sjúkraþjálfunar í Vestmannaeyjum og koma sér einstaklega vel. Með þessari gjöf er þjónusta við skjólstæðinga HSU í Vestmannaeyjum bætt til muna. Lionsklúbbur Vestmannaeyja hefur í gegnum tíðina stutt dyggilega við bakið á stofnunni með gjafaframlagi sínu og er HSU ákaflega þakklát þeim ómetanlega stuðningi Lionsmanna. Án stuðnings frá félagasamtökum eins og Lions, væri búnaður stofnunarinnar rýrari.