Þeir Örn Hilmisson og Kristján Egilsson vinna nú að verkefni á vegum Sæheima,  sem felst í því að safna saman upplýsingum um litarafbrigði lunda í Vestmannaeyjum auk þess að taka ljósmyndir af þeim og gera aðgengilegar fyrir almenning.

Örn og lundaprinsinn ( Örn er fyrir aftan á myndinni)

Biðla þeir til allra sem hafa  slík afbrigði í sínum fórum að hafa samband og mæta með fuglana í myndatöku hjá þeim félögum eða fá þá í heimsókn. Hafa má samband við Örn í síma 861-8501 eða senda tövupóst á [email protected].

Lundinn er talinn búa yfir óvenju fjölbreyttu úrvali af litarafbrigðum. Hafa veiðimenn jafnan sóst eftir að fanga afbrigðin og flaug það eins og eldur og sinu um Vestmannaeyjar ef eitthvað náðist eða sást og þeir sem náðust voru stoppaðir upp hið snarasta. Þessir uppstoppuðu lundar ganga mann fram af manni og eru því til ýmis afbrigði lunda á fjölda heimila í Vestmannaeyjum og víðar. Eru þeir kallaðir ýmsum nöfnum t.d. er kóngurinn alhvítur og drottningin er ljósbrún. En þarna má einnig finna prinsa, prinsessur, keisara, sótara og kolapilta.

Í Sæheimum er til nokkur fjöldi þessara afbrigða og hafa gestir safnins oft mikinn áhuga á að fá að vita meira um þessa sérstöku fugla. Við vitum að til eru enn fleiri afbrigði, en aldrei hefur verið gerð úttekt á fjölda þeirra, en það væri mjög athyglisvert að taka það saman. Lundaveiðar eru samofnar sögu Eyjamanna og mikilvægt að varðveita þennan hluta þeirra eins og söguna sjálfa.

Langar okkur til að skoða nánar hversu mörg afbrigði eru í raun og veru til og gera skrá yfir fjölda þeirra, eigendur, veiðistaði o.fl.  Einnig viljum við taka góðar ljósmyndir af öllum litarafbrigðunum og gera myndirnar aðgengilegar fyrir almenning.