Framundan er hátíð ljóss og friðar. Að mörgu þarf að hyggja og eitt af því er að huga vel að jólaljósum, skreytingum og rafmagnsöryggi. Rafmagn er stórvirkur brennuvargur og á hverju ári verða eldsvoðar, sem eiga upptök sín í rafbúnaði.

Mannvirkjastofnun hefur nýlega birt gagnlegar upplýsingar um jólaljós og rafmagnsöryggi og á vef sínum. Umhverfis- og framkvæmdasvið Vestmannaeyjabæjar ráðleggur öllum að kynna sér vel þessar leiðbeiningar.