Í síðustu viku á ríkisstjórnarfundi kynntu Félags- og barnamálaráðherra og heilbrigðisráðherra áform um skoða í sameiningu breytingar til að styðja betur við barnshafandi konur á landsbyggðinni og fjölskyldur þeirra.
Samkvæmt frétt á vef Stjórnarráðsins verður skipaður starfshópur sem á að móta og leggja fram tillögur að úrbótum, hvort sem er innan fæðingarorlofskerfisins eða með öðrum hætti. Starfshópurinn mun fara yfir aðstæður þessara kvenna með tilliti til staðsetningar fæðingarþjónustu á landsvísu en margar þeirra þurfa að dveljast fjarri heimabyggð, með tilheyrandi tilkostnaði, í nokkurn tíma til að hafa öruggt aðgengi að heilbrigðisþjónustu á meðgöngu og eftir fæðingu.