Jórunn Emilsdóttir Tórshamar

„Í dag 21. janúar eru 100 ár frá fæðingu ömmu minnar Jórunnar Emilsdóttur Tórshamar. En hún skildi eftir sig á fimmta tug kvæða flest ort um hennar eigin lifsreynslu og hugsanir,” sagði Helgi Tórshamar, tónlistarmaður og lagahöfundur í samtali við Eyjafréttir um tilurð nýs lags sem hann sendir frá sér í dag.

Lagið heitir Góðan dag, góða nótt og er eitt þeirra laga við ljóð Jórunnar sem prýða tilkomandi plötu Helga, Brekka, sem inniheldur 12 til 15 lög við ljóð ömmu hans.”Amma skildi eftir sig ótal ljóð sem hún samdi yfir æviskeið sitt. Elsta ljóð hennar, sem ég hef undir höndum, samdi hún aðeins átta ára gömul,” sagði Helgi. Ótal vestmannaeyskra tónlistarmanna og söngvara koma fyrir á plötunni.

Í laginu Góðan dag, góða nótt sem hlýða má á í spilaranum hér að ofan syngur dóttir Helga, barnabarnabarn Jórunnar, Guðný Emilíana.
Aðrir sem koma að laginu eru  Elísabet Guðnadóttir : Raddir & þverflauta. Helgi Rasmussen Tórshamar : Kassagítar & rafgítar. Gísli Stefánsson : Píanó, Bassi & hammond. Einar Hallgrímur Jakobsson : Trompet & básuna. Guðlaugur Ólafsson : Tenor sax. Upptökustjórn : Helgi Rasmussen Tórshamar & Gísli Stefánsson. Hljóðblöndun og Master : Gísli Stefánsson.

Ljóðið má lesa hér að neðan:

Góðan dag, góða nótt

Brosir ylhýrt barnsins auga

berst að eyrum, dularlag. 
Sólskinsbros í ljósi lauga
lífsins morgun, góðan dag.
 
Falla tár um föla vanga
Foldin grætur, allt er hljótt.
Eftir ævi liðna langa
lokast augun, góða nótt.