Miðvikudaginn 13. febrúar kl. 09:00-10:00 heldur útibú Íslandsbanka í Vestmannaeyjum gagnlegan fund um notkun fyrirtækjabanka Íslandsbanka. Helstu aðgerðir eru útskýrðar og sérfræðingar sitja fyrir svörum.

Fundurinn er haldinn í útibúi Íslandsbanka í Vestmannaeyjum og verður boðið upp á léttar veitingar. Athugið að takmarkaður sætafjöldi er í boði og því er skráning á fundinn nauðsynleg. Hægt er að skrá sig hér.