Vestmanneyingurinn og hlauparinn Hlynur Andrésson keppti í 3000 metra hlaupi í Belgíu á laugardaginn þar sem hann bar sigur úr býtum. Tíminn hans var 8:08,24 mínútur og er það nýtt Íslandsmet. Fyrra metið var 8:10,94 mínútur sem Kári Steinn Karlsson átti frá árinu 2007. Hlynur hefur hlaupið vegalengdina á 8:02,08 mínútum en ekki á löglegri braut og því gildir það ekki sem Íslandsmet.

Hlynur berst við að ná lágmarki á EM innanhúss sem fram fer 1.-3. mars í Glasgow. Lágmarkið í 3000 metra hlaupi er 8:05,00 mínútur svo það tókst því miður ekki hjá honum í þetta skiptið.