Á fundinum verða kynntar helstu niðurstöður viðhorfskönnunar um þjónustu sveitarfélagsins við íbúa Vestmannaeyjabæjar. Markmiðið er að upplýsa bæjarbúa um stöðu þjónustunnar í Vestmannaeyjum og leita eftir viðbrögðum um hvað megi betur fara og hvernig hægt er að bæta þjónustuna.

17:00 – 17:20 Kynning á þjónustukönnun Gallup – Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri

17:20 – 18:30 Umræður um niðurstöður könnunarinnar og stöðu sveitarfélagsins. Þátttakendum verður skipt í nokkra hópa eftir fjölda og umræður um einstök málefni fara fram á nokkrum borðum. Meðal málefna verða sorpmál, skipulagsmál, skólamál, íþróttamál, umhverfismál, staða eldri borgara, barnafjölskyldna og fatlaðra, menningarmál og þjónusta starfsmanna sveitarfélagsins.

Kjörnir fulltrúar og nefndarfólk Vestmannaeyjabæjar munu dreifa sér á borðin og fylgja eftir málaflokkum sínum.

Allir velkomnir

Bætum samfélagið saman