Eins ótrúlega og það hljómar þá eru samin fleiri lög en Eyjalög. Það sem er enn ótrúlegra þá eru meira að segja Eyjamenn líka að semja slík lög til að mynda Eurovision lög. Síðast liðinn laugardag kynnti RÚV lögin sem taka þátt í undankeppni Eurovision á Íslandi. Þar mátti sjá kunnuglegt andlit meðal höfundanna en þar er á ferðinni Eyjamaðurinn Stefán Þór Steindórsson. Við tókum aðeins púlsinn á okkar manni.

„Það má kannski segja að þetta sé einhverskonar Country popp. Textinn fjallar um þessa tilfinningu að horfa til annars einstaklings sem bætir þig að einhverju leiti,“ sagði Stefán um lagið ‚Þú bætir mig‘ sem hann samdi ásamt Richard Micallef. Textann samdi Stefán einnig ásamt Nikos Sofis. „Það þurfa allir einhvern, því í eðli sínu er maðurinn ekki einfari.”
Lagið verður flutt af Ívari Daníelssyni í Söngvakeppninni 2019 og er eitt þeirra 10 laga sem keppa um að vera framlag Íslands í forkeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2019. Fyrirkomulaginu við valið á lögum í undankeppnina var með breyttu sniði í ár. Reyndir og vinsælir lagahöfundar voru ráðnir til að semja hluta laganna en auk þess var valið úr innsendum lögum líkt síðustu ár.

Efni á þessari síðu er aðeins fyrir áskrifendur. Vinsamlegast skráðu þig inn til að lesa meira eða gerast áskrifandi.

Existing Users Log In