Komum og kynnumst viðhorfum unga fólksins

Opinn bæjarstjórnarfundur unga fólksins í dag, föstudag kl 12-13:30.

Eva og Guðbjörg

Í dag föstudag, kl. 12.00 er bæjarstjórnarfund unga fólksins. Fundurinn, sem er öllum opinn og verður haldinn í bíósal Kviku er í samstarfi við Grunnskóla Vestmannaeyja. Eru það nemendur elstu bekkja skólans sem hafa veg og vanda af fundinum.

Eva Sigurðardóttir og Guðbjörg Sól Sindradóttir eru meðal bæjarfulltrúa á fundinum og eru þær mjög spenntar. „Við erum báðar í níunda bekk og höfum verið undirbúa okkur undanfarið,“ segja þær stöllur. „Við erum mjög spenntar, líka pínu stressaðar en það er líka gaman að við vorum valdar,“ bæta þær við.Þau verða fimm eða sex á sviðinu og hafa þau fengið leiðsögn um fundarsköp og hvernig bæjarstjórnarfundir fara fram. „Við höfum verið hittast reglulega í skólanum síðustu tvær vikur, svona 40 mínútur í hvert skipti og hefur þetta verið fróðlegt fyrir okkur,“ sagði Eva.
Fimm mál verða lögð fram á fundinum og eru þau eins mismundandi og þau er mörg. „Við viljum t.d. taka við flóttamönnum til Eyja. Meiri afþreyingu, ekki bara fyrir okkur heldur fyrir alla eins og t.d. keilu,“ sagði Guðbjörg Sól.
„Við viljum líka sjá hér fleiri íþróttagreinar í Vestmannaeyjum og betri stóla og borð í skólanum. Helst hækkanleg borð og vonandi verður hlustað á okkur,“ sagði Eva.
„Þetta er gert til að sjá hvað við krakkarnir viljum og það er svo undir bæjarstjórn að vinna úr því. Þetta er góð viðbót við Smiðjudagana sem eru í skólanum þessa vikuna. Þar er árshátíðin hápunkturinn og hlökkum við mikið til,“ sögðu Eva og Guðbjörg Sól að endingu.

Eftir fundinn verður boðið upp á pizzur. Hann stendur frá 12.00 til 13.30. Fundurinn er öllum opinn og ástæða til að hvetja alla, unga sem eldri, til að mæta.