Háskóladagurinn verður með kynningu í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum á mánudaginn 18. mars frá kl. 11:00 til 13:00 en ekki í dag eins og áður var greint frá.

Allir háskólar landsins kynna þar námsframboð sitt, sem telur yfir 500 námsleiðir, og námsráðgjafar verða á staðnum.

Langar þig í háskólanám? Ef svarið er já, þá viltu ekki missa af þessu einstaka tækifæri.

Allir velkomnir!