Hluti af því bóluefni sem er að berast landsins kemur á heilsugæslur á Suðurlandi í dag og restin kemur á þriðjudag ef áætlanir ganga eftir. Byrjað verður að bólusetja í dag og haldið áfram eftir helgi, þessu er greint frá á vef HSU.

Þeim sem verður boðin bólusetning til að byrja með eru óbólusett börn frá 12 mánaða aldri til 18 ára aldurs (börn/einstaklingar sem verða/urðu 18 ára á þessu ári). Nánari upplýsingar varðandi aldursskiptingu við bólusetningu og aðrar upplýsingar um mislinga má finna á www.landlaeknir.is

Eingöngu er hægt að bóka 12 mánaða til 18 ára börn að svo stöddu. Í næstu viku verður boðið upp á bólusetningu fyrir 18 ára til 49 ára, en nánar verður tilkynnt um það síðar.