Þessa dagana fer fram flutningur á lifandi fiskum og öðrum sjávarlífverum frá Sæheimum í ný heimkynni hjá Sea Life Trust að Ægisgötu 2. Búið er að flytja flest dýrin, en ennþá eru nokkur sérstaklega þrjósk hornsíli eftir og litlir krabbar sem eru í felum bak við steina.

Sæheimar hafa nú hætt starfsemi sinni og lýkur þar með sögu þessa safns, sem var stofnað 5. júní árið 1964 undir nafninu “Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja”. Þann 7. febrúar 1965 var fuglasalurinn opnaður og 7. apríl sama ár var fiskasalurinn opnaður. Það eru því um 54 ár frá því að fyrstu fiskarnir voru fluttir í sýningarbúrin og þar til þeir síðustu eru fluttir á brott.

Nú styttist óðum í að nýja sýningaraðstaðan opni og eru því spennandi tímar framundan. Auðvitað munu margir sakna gamla góða Fiskasafnsins en með nýjum tímum koma ný tækifæri og erum við þess fullviss að heimamenn eigi eftir að vera stoltir af nýju sýningunni og að hún muni bera hróður Eyjanna víða, segir í tilkynningu á heimasíðu Sæheima.