Þórunn Sveinsdóttir VE-401 sigldi til Skagen í Danmörku nú í marsbyrjun en lengja á skipið um 6,6 metra. Gylfi Sigurjónsson skipstjóri á Þórunni er í Skagen og sagði í samtali við Eyjafréttir að allt gengi vel og verkið væri á áætlun.

Skipasmíðatöðin Karstensens í Skagen í Danmörku sér um að lengja skipið en sú stöð smíðaði skipið árið 2010. Með lengingunni eykst lestarplássið í skipinu töluvert og mun skipið bera 200 kerum meira en það gerir í dag, einnig verður farið í almennt viðhald á Þórunni.

 

„Verkefnið gengur bara mjög vel og eigum við að fá skipið í hendurnar 31.maí og reiknum við með því að komast á veiðar um miðjan júní,“ sagði Gylfi.