Í dag þriðjudaginn 26. mars kl. 17:30- 18:30 fer fram fundur í Þekkingarsetri Vestmannaeyja með yfirskriftinni Loðnubrestur – áhrif, afleiðingar og aðgerðir.

Á fundinum verður farið yfir þá stöðu sem upp er komin í kjölfar þess loðnubrests sem er orðin staðreynd. Fjárhagslegt högg er gríðalegt fyrir samfélag eins og Vestmannaeyjar, fólkið, fyrirtæki og sveitarfélagið, sem á mikið undir loðnuveiðum og vinnslu loðnuafurða.
Fundurinn er öllum opinn.

Fundur verður einnig sýndur í beinni útsendingu hér á vefsíðu Eyjafrétta og má sjá útsendinguna í spilaranum hér að ofan.