Það hefur verið góð veiði á botnfisk bæði hjá Ísfélaginu og Vinnslustöðinni. Einnig er verið að veiða Kolmuna í færeyskri lögsögu og hefst svo makrílvertíð í júli.

„Það verður einn kolmunnatúr í færeysku lögsöguna um næstu mánaðarmót og svo er bara makrílvertíð sem byrjar í júlí hjá Heimaey og Sigurði,“ sagði Eyþór Harðason útgerðastjóri Ísfélagsins í samtali við Eyjafréttir og sagði einnig að bolfiskskipin væru búin að vera að veiðum, „þau halda uppi vinnslu í frystihúsunum okkar í Eyjum og á Þórshöfn,“ sagði Eyþór.

Veiðin undanfarnar vikur hefur verið nokkuð góð
Sindri Viðarsson hjá Vinnslustöðinni sagði að það væri búið að vera mikið að gera í vinnslu á botnfiski. „Unnum til dæmis alla síðustu helgi í flatningu og söltun. Veiðin undanfarnar vikur hefur verið nokkuð góð. Það hefur skilað sér í mikilli vinnu en nú er dottið í langþráð páskarfrí þar sem við hlöðum batteríin næstu daga. Eftir Páskana tekur svo við hefðbundin bolfiskvinnsla sem verður þó ekki með sama krafti og undanfarnar vikur en einnig fer Brynjólfur á humar og Kap II á grálúðunet,“ sagði Sindi.

“Auðvitað er loðnubresturinn mikill skellur fyrir alla en um síðustu helgi héldu Kap og Ísleifur á kolmunnamiðin suður af Færeyjum og vonumst við til að þau komi hérna fljótlega eftir páska til löndunar. Eftir kolmunna tekur svo við einhver bið eftir makríl sem verður líklega um mánaðarmótin júní/júlí,“ sagði Sindri að endingu.