Laugardaginn 4. maí næstkomandi sækir heim Eyjarnar einn ástsælasti tónlistarmaður íslands, Mugison og heldur tónleika í Alþýðuhúsinu. Þegar við heyrðum í kappanum var hann í óðaönn að taka upp nýja plötu.

Frá tónleikum Mugison í Bæjarbíó.

„Ég er að spila og taka upp nýtt íslenskt efni, lög sem ég hef verið að semja síðustu tvö ár. Við vorum löt að spila á síðasta ári þannig að núna bókaði ég bara helling af tónleikum og hef verið að nota tækifærð og kenna hljómsveitinni nýju lögin mín,“ sagði Mugison fullur tilhlökkunar. „Það er svo spennandi að spila nýtt efni svolítið eins og að raka af sér skeggið og spyrja konuna þegar hún kemur heim „sérðu einhverja breytingu? er þetta geggjað eða ógeðslegt?”
Það er orðið töluvert síðan Mugison kom til Eyja síðast en síðast fylgdi hann eftir plötu sinni Enjoy! sem kom út 2016. „Ég held ég hafi komið fyrir 2 árum til Dodda uppi í Höll, það var hörkugaman. Man að við duttum vel í það á barnum þarna uppi í Höllinni og pöntuðum okkur geggjaðar pizzur einhver tímann um morguninn.“

Mugison með hljómsveit sinni á sviði í Bæjarbíói. Arnar Gíslason á trommur, Guðni Finnsson á bassa, Þorbjörn Sigurðsson á hljómborð og gítar og Rósa Guðrún Sveinsdóttir á saxafón.

Besta hljómsveit í heimi
Það er einhvern veginn aldrei leiðinlegt í kringum í kringum Mugison og má því búast við skemmtilegum tónleikum þann 4. Maí. Hann mætir með fjögurra manna band með sér. Auk hans skipa hljómsveitina Arnar Gíslason á trommur, Guðni Finnsson á bassa, Þorbjörn Sigurðsson á hljómborð og gítar og Rósa Guðrún Sveinsdóttir á saxafón.
„Mér finnst hljómsveitin mín vera besta hljómsveit í heimi, hver einstaklingur með ofurmátt á sitt hljóðfæri,“ sagði Mugison aðspurður um hljómsveitina. „Við komum til að spila tvö til þrjú ný lög, eitt þeirra heitir „Gúanó Kallinn“ svo tökum við lag sem ég er einmitt að taka upp akkúrat núna það heitir „Sólin er kominn“ og er hressasta lag sem ég hef gert. Árið 2017 spilaði ég á 56 stöðum út um allt land, einhvern tímann á þessum tímabili vorum við Rúna (konan mín) að spá hverskonar lag okkur vantaði í prógrammið hjá okkur og vorum sammála að mig vantaði eitt lag sem væri súper jákvætt fyndið og skemmtilegt. Það verður gaman að sjá og heyra hvernig Eyjamenn taka þessum lögum.“
Aðspurður um hvað væri svo framundan sagði Mugison „halda áfram að spila eins og brjálæðingur og taka upp nýja tónlist, gefa út, spila meir, taka upp, spila o.s.frv. næstu 80 árin.“