Blóðgjöf er raunveruleg lífgjöf og getur ein blóðgjöf bjargað allt að þremur lífum. Því skiptir hver og einn blóðgjafi ótrúlega miklu máli. Til þess að anna eftirspurn eftir blóði þarf u.þ.b. 2000 nýja blóðgjafa á hverju ári til viðbótar við þann hóp sem við höfum nú þegar.

Ert þú á aldrinum 18-65 ára og heilsuhraust/ur?
Langar þig til að bjarga lífum?

Vertu þá velkomin/n á sjúkrahúsið Vestmannaeyjum, dagana 27. og 28. maí til að láta kanna hvort þú getir gefið blóð.

Allir velkomnir, nýir sem virkir blóðgjafar!