Í dag heimsóttu strákarnir okkar í ÍBV Breiðablik í Kópavoginum. Breiðablik hafði betur í þeim leik og end­ur­heimti topp­sætið í Pepsi Max-deild karla í knatt­spyrnu eft­ir 3:1 , í fyrsta leik 10. um­ferðar. Eyja­menn komust yfir og voru sterk­ari fram­an af en það átti eftir að breytast.ÍBV er nú á botn­in­um með fimm stig eft­ir tíu leiki og hafa aðeins unnið einn leik í deildinni.

Það er gaman að segja frá því að af 11 leikmönnum ÍBV í leiknum voru á tímabili sex leikmenn fæddir og uppaldir í Eyjum að spila.