Herjólfur verður einn aðalstyrktaraðili KFS, sem kemur sér afar vel í baráttunni í 4. deild. Með KFS spila ungir og efnilegir knattspyrnumenn með reyndari leikmönnum í meistaraflokki. Í liði ÍBV í dag sem og undanfarin ár spila fjölmargir leikmenn sem hófu meistaraflokksferil sinn með KFS.

Skrifað var undir í blíðunni í Eyjum í dag um borð í nýjum glæsilegum Herjólfi sem hefur siglingar milli lands og Eyja á næstu dögum. Á myndinni má sjá Hannes Gústafsson og Óskar Örn Ólafsson stjórnarmenn KFS ásamt Guðbjarti framkvæmdastjóra Herjólfs ohf.