Alfreð Már Hjaltalín hefur samið við ÍBV um starfslok. Þetta staðfestir Daníel Geir Moritz, formaður í knattspyrnuráði ÍBV við fótbolta.net

Alfreð Már er fljótur kantmaður eða bakvörður, en hann hefur verið að glíma mikið við meiðsli. Alfreð, sem er 25 ára, kom til ÍBV fyrir síðustu leiktíð og spilaði hann þá 16 leiki í Pepsi-deildinni, 18 leiki í öllum keppnum. Í sumar hefur hann ekkert komið við sögu. Áður en hann gekk í raðir ÍBV hafði hann leikið allan sinn feril með Víkingi í Ólafsvík.

Enskur miðvörður
Knattspyrnudeild ÍBV tilkynnti í gær komu Oran Jackson frá enska félaginu MK Dons.
Jackson er 20 ára gamall miðvörður en hann er upalinn hjá MK Dons. Hann á að baki 9 leiki fyrir félagið þar af einn í ensku B-deildinni en hann hefur einnig spilað fyrir Hemel Hempstead Town og Brackley Town í ensku neðri deildunum. Jackson lék meðal annars í 3-0 sigri MK Dons á Charlton í enska deildabikarnum á síðasta tímabili og þá einnig gegn úrvalsdeildarliði Bournemouth.

ÍBV bindur miklar vonir við hann en auk þess hefur félagið fengið þá Sindra Björnsson á láni frá Val, Gary Martin frá Val og Benjamin Prah.

ÍBV er í botnsæti Pepsi Max-deildarinnar með 5 stig eða sjö stigum á eftir næsta liði.