Í gær framlengdi Kári Kristján Kristjánsson samning sinn við ÍBV og skrifaði undir samning til tveggja ára.

Það er ótrúlega mikilvægt fyrir ÍBV að tryggja sér krafta Kára áfram, enda hefur hann verið lykilmaður í liði ÍBV síðustu ár og verið einn allra besti línumaður landsins um árabil.