Leið 52 hjá Strætó, sem geng­ur milli Reykja­vík­ur og Land­eyja­hafn­ar, mun aka 21 auka­ferð dag­ana 1.-5. ág­úst vegna þjóðhátíðar í Vest­manna­eyj­um.

Fram kem­ur í frétta­til­kynn­ingu frá Strætó að auka­ferðirn­ar séu all­ar skipu­lagðar með áætl­un Herjólfs að leiðarljósi og er tíma­áætl­un­ina að finna hér.

Ekki verður hægt að bóka sæti um borð fyr­ir fram og far­gjald er greitt um borð í vagn­in­um. Hægt er að greiða far­gjald í lands­byggðar­vögn­um með debit- eða kred­it­kort­um, stræ­tómiðum eða reiðufé, en vagn­stjór­ar geta ekki gefið til baka.

Mbl.is greindi frá.