Lögregla telur að um 15.000 manns hafa sótt þjóðhátíð Vestmannaeyja 2019 og var hátíðin svipuð að stærð og árið 2018. Samtals sinntu 27 lögreglumenn löggæslu á þremur lögreglubifreiðum auk 130 gæslumanna sem lúta stjórn lögreglu. Tveir sérsveitarmenn Ríkislögreglustjóra voru til aðstoðar lögreglu á sérútbúnum bíl. Sex óeinkennisklæddir lögreglumenn sinntu fíkniefnaeftirliti og höfðu sér til aðstoðar 3-4 fíkniefnaleitarhunda sem eru í eigu embættis Lögreglustjórans í Vestmannaeyjum, Lögreglustjórans á Austurlandi og Fangelsismálastofnunar. Starfandi læknir var í dalnum auk heilbrigðisstarfsfólks, áfallateymis, barnaverndar og sjúkraflutningamanna og gengu allir sólarhringsvaktir.

Umferð gekk vel þessa helgi. Lögregla leggur ríka áherslu á að greina gangandi umferð frá akandi í Herjólfsdal og hefur tekist vel til sérstaklega með lengingu á göngustíg í dalinn. Á álagstímum er umferð gangandi og akandi verulega þung í dalnum en vel tókst til að leysa hnökra sem hafa verið á því.  Huga þarf sérstaklega að akstri inn á hátíðarsvæðið á næsta ári. Fólksflutningar gengu vel bæði með Herjólfi og innanbæjar með strætóum og leigubílum.

Heildarfjöldi fíkniefnamála voru 25 að þessu sinni, árið 2018 voru málin 35, árið 2017 voru málin 47, árið 2016 voru málin 30 og árið 2015 72 talsins. Grunur er um sölu- og dreifingu í tveimur þessara mála. Lögregla er ánægð með árangurinn og hefur það sýnt sig að öflugt fíkniefnaeftirlit skilar árangri. Að mati lögreglu var minna um fíkniefnaneyslu á hátíðinni nú en áður. Fíkniefnaleitarhundar eru ávallt notaðir við leit á þjóðhátíð og auka þeir árangur og gæði eftirlitsins. Notkun leitarhundanna hefur ótvírætt forvarnargildi.

Þrjú kynferðisbrot eru til rannsóknar hjá lögreglu eftir helgina. Níu líkamsárásir komu inn á borð lögreglu. Þar af eru þrjár meiriháttar með tilliti til áverka þar sem um beinbrot var að ræða. Aðrar voru minniháttar og þar af eitt heimilisofbeldismál. Önnur brot voru tvö eignaspjöll, einn þjófnaður, ein hótun, einn nytjastuldur, brot á reynslulausn, sex áfengislagabrot, tveir ölvunarakstrar og einn fíkniefnaakstur.

Lögregla sinnti 222 verkefnum yfir hátíðina og gekk vel að leysa úr öllum verkefnum sem komu inn á borð hennar. Að mati lögreglu gekk löggæsla vel og voru bæði lögregla og gæslumenn áberandi í Herjólfsdal og stutt í aðstoð. Viðbragð í sjúkraskýli, hjá áfallateymi og barnavernd var gott og var fjölmörgum sinnt vegna mismunandi erfiðleika. Lögregla þakkar viðbragðsaðilum fyrir gott samstarf vegna þjóðhátíðar sem er jafnan stærsta löggæsluverkefni lögreglunnar á ári hverju.