ÍBV hefur tilkynnt  gengið hafi verið frá samningi við tvo nýja leikmenn fyrir kvennaliðið en það eru Darija Zecevic og Ksenija Dzaferovic en báðar koma þær frá Svartfjallalandi. 

Darija er 21 árs gamall markvörður sem var síðast á mála hjá Zurd Koper í Slóveníu. 

Ksenija er 19 ára gömul skytta og var síðast á mála hjá ŽRK Budućnost í Svartfjallalandi. 

ÍBV býður stelpurnar velkomnar til Eyja.