Þá er handboltinn farinn að rúlla og liðin að leika æfingaleiki í dag og á morgun.

Föstudagur:
ÍBV-HK mfl.kk klukkan 18:00
ÍBV U – HK U klukkan 19:30

Laugardagur:
FH – ÍBV mfl.kvk (í Kaplakrika) klukkan 11.
ÍBV-HK mfl.kk
ÍBV U-HK U
Enginn tími er kominn á leikina hjá körlunum á laugardaginn og verða þeir auglýstir síðar á facebook síðu handboltans.

Við hvetjum alla til að kíkja á þessa leiki og skoða liðin sem eru að spila sig saman fyrir mótið.  Olísdeild karla hefst svo 8 sept. þar sem fyrsti leikur verður viðureign ÍBV og Stjörnunar í Eyjum.  Stelpurnar eru svo helgina á eftir en þá tekur ÍBV á móti Aftureldingu  laugardaginn 14 sept.  Eyjafréttir mun verða með ítarlega kynningu á leikmönnum karlaliðs og kvennaliðs félagsins í blaðinu sem kemur út í næstu viku.

Áfram ÍBV
Alltaf, alls staðar!