Nú rétt í þessu lauk leik ÍBV gegn ÍA á Skaganum þar sem ÍA hafði sigur 2-1.  Það var Gary Martin sem skoraði mark Eyjamanna en  með þessum úrslitum er ljóst að ÍBV er fallið úr efstu deild eftir að hafa verið í hóp þeirra bestu frá 2009.  Nú liggur fyrir að það þarf að fara í uppbyggingu og Vestmannaeyingar þurfa að þétta hópinn og standa við  bakið á liðinu næstu misseri til að koma ÍBV aftur í efstu deild þar sem félagið á svo sannarlega heima.