ÍBV vann sanngjarnan sigur á stjörnuprýddu liði Vals á Hásteinsvelli í dag. Kristinn Freyr Sigurðsson kom Val 1-0 yfir á annarri mínútu en Gary Martin, fyrrum sóknarmaður Vals, jafnaði metin á 11. mínútu og kom svo ÍBV yfir í síðari hálfleik. Þessi úrslit hafa lítil áhrif á stöðu ÍBV á botni deildarinnar en gætu reynst Valsmönnum dýr í keppninni um Evrópusæti.