Nú er handboltatímabilið að hefjast og ætlum við að keyra það í gang með leikmannakynningu fyrir Krókódílana okkar. Farið verður yfir leikmannahópa vetrarins ásamt því að þjálfarar svara spurningum úr sal. Leikmannakynningin verður föstudaginn 6.september í sal Akóges, klukkan 20:00, og verður boðið upp á léttar veitingar í föstu og fljótandi formi.
Fyrir þá sem ekki vita að þá eru Krókódílarnir stuðningsmannahópur ÍBV handbolta. Þeir greiða fasta fjárhæð mánaðarlega og fá þess í stað frían aðgang að öllum deildarleikjum hjá ÍBV handbolta í karla- og kvennaflokki. Hægt verður að nýskrá sig í hópinn á staðnum!

Hlökkum til að sjá sem flesta og föstudaginn, og svo að sjálfsögðu á fyrsta deildarleik karlaliðsins í vetur á sunnudaginn kemur klukkan 16:00 í Íþróttamiðstöðinni.