Ásmundur Friðriksson var fyrsti fluttningsmaður á þingsáliktunartillögu um þyrlupall á Heimaey nú við upphaf þings. Ásmundur hefur áður flutt tillögu sem þessa en ekki komið henni til umræðu hér að neðan má sjá tillöguna og greinargerð.

Alþingi ályktar að fela samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að gera nú þegar ráðstafanir til að Isavia geti hannað og staðsett þyrlupall á Heimaey til að auka enn frekar öryggi í sjúkra- og neyðarflugi til Vestmannaeyja. Verkinu verði lokið ekki síðar en árið 2021.

Greinargerð.

Þingsályktunartillaga þessi var áður lögð fram á 149. löggjafarþingi (121. mál).
Þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa farið tugi ferða á undanförnum árum til Vestmannaeyja í sjúkraflug þegar engin önnur leið er fær á milli lands og Eyja. Sjúkraflug til Vestmannaeyja eru um 100 á ári en er mörgum annmörkum háð. Það tekur um það bil tvær klukkustundir að undirbúa og koma sjúkraflugvél til Eyja frá því að útkall kemur og þar til vélin lendir í Eyjum. Staðsetning sjúkraflugs á Akureyri er nánast lengsta mögulega flugleið frá landsbyggðinni til Eyja. Veður breytast eins og hendi sé veifað í Vestmannaeyjum og það gerist að sjúkraflugvél sem lögð er af stað til Eyja á ekki möguleika á að lenda þar. Þar getur verið mjög misvindasamt, skýjahæð undir 500 fetum og oft krefjandi aðstæður sem sjúkraflugvél ræður ekki við. Við þær aðstæður þarf að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar til að sækja sjúka eða slasaða til Eyja. Þyrlur Gæslunnar hafa oft farið við afar erfiðar aðstæður til Eyja og oft er flugvöllurinn lokaður fyrir allri umferð og þarf þyrlan í slíkum neyðarflugum að notast við Hamarsveg, vestan Dverghamars, sem lendingarstað. Ekkert merkt svæði eða lendingarpallur er í Vestmannaeyjum í slíkum tilfellum og mikilvægt að auka öryggi íbúanna með byggingu þyrlupalls. Staðsetningu þyrlupalls þarf að ákveða í samráði við Isavia í Vestmannaeyjum, yfirstjórn sjúkraflutninga HSU, Flugdeild Landhelgisgæslu Íslands og skipulagsyfirvöld í Vestmannaeyjum.
Í Vestmannaeyjum búa rúmlega 4.200 manns við áhættusækið atvinnulíf og skerta sjúkrahúsþjónustu í alvarlegustu tilfellum. Fæðingarþjónusta er rekin með ljósmæðravakt, en ekki er rekin sérfræðiþjónusta lækna allan sólarhringinn. Sjúkraflug er því mikilvægur öryggisventill sem alls ekki má bregðast þegar neyðarástand skapast í Eyjum. Fyrirséð er að þyrla verður áfram mikilvægt öryggistæki fyrir sjúkraflug frá Eyjum þegar flugvöllurinn er lokaður, Herjólfur ekki í siglingum og Landeyjahöfn jafnvel lokuð. Það er því mikilvægt að búa þannig að þyrlufluginu að besta mögulega aðstaða verði gerð sem fyrst og nýtist þegar flugvöllurinn í Eyjum lokast vegna veðurfarsaðstæðna sem enginn ræður við eins og gerist iðulega fyrirvaralítið í Eyjum.