Eftir klukkustund hefst leikur Selfoss og ÍBV í Pepsi Max-deild kvenna á Selfossi. Þetta er síðasti leikur sumarsins hjá stelpunum en þær geta með sigri komist upp í 7. sæti, því næstu lið fyrir ofan Stjarnan og KR mætast á sama tíma. Því er ljóst að í það minnsta annað hvort þeirra kemur til með að tapa stigum.