Í dag veitti Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) ráð um veiðar ársins 2020 fyrir norsk-íslenska síld, makríl og kolmunna. Þessi ráðgjöf hefur bein áhrif á veiðar Íslendinga sérstaklega í norsk-íslensku síldinni þar sem ráðið leggur til 11% lækkun og gera má ráð fyrir að hlutdeild Íslendinga lækki sem því nemur. Áhrifin af breytingunni í Makríl er erfiðara að segja til um þar sem Íslendingar eru ekki jafn bundnir af alþjóðlegum samningum um þær veiðar.

Norsk-íslensk vorgotssíld

ICES leggur til í samræmi við samþykkta aflareglu strandríkja að afli ársins 2020 verði ekki meiri en 526 þúsund tonn. Ráðgjöf yfirstandandi árs var 589 þúsund tonn og er því um að ræða 11% lækkun í tillögum ráðsins um afla næsta árs. Ástæða þess er fyrst og fremst að stofninn er enn á niðurleið eftir slaka nýliðun um árabil. Áætlað er að heildarafli ársins 2019 verði um 774 þúsund tonn sem er 31% umfram ráðgjöf.

Makríll

ICES leggur til, í samræmi við nýtingarstefnu sem mun leiða til hámarks afraksturs til lengri tíma litið (MSY), að afli ársins 2020 verði ekki meiri en 922 þúsund tonn. Ráðgjöf yfirstandandi árs var 770 þúsund tonn og er því um að ræða tæplega 20% aukningu í tillögum ráðsins um afla næsta árs. Áætlað er að heildarafli ársins 2019 verði um 835 þúsund tonn, rúm 9% umfram ráðgjöf.

Kolmunni

ICES leggur til, í samræmi við langtímanýtingarstefnu, að afli ársins 2020 verði ekki meiri en 1,161 milljón tonn. Ráðgjöf fyrir árið 2019 var mjög svipuð eða 1,14 milljón tonn en gert er ráð fyrir að aflinn á árinu verði um 1,44 milljón tonn, 26% umfram ráðgjöf.

nánar má lesa um þessi mál vef hafrannsóknarstofnunar