ADHD Eyjar boða til opins fræðslu- og spjallfundar um ADHD og hvernig bæta megi lífsgæði fólks með ADHD í Vestmannaeyjum á Þriðjudagskvöld kl. 19:30 í Hamarsskóla (gengið inn að vestan). Með fundinum hefjum við formlegt starf ADHD Eyjar. Formaður ADHD samtakanna, Elín H Hinriksdóttir heldur framsögu og Ása Ingibergsdóttir og Ásta Björk Guðnadóttir kynna fyrirhugað starf ADHD Eyjar og í framhaldi verður spjallað um allt það sem fundargestir vilja helst, varðandi ADHD og starfið framundan.

Allir velkomnir, fólk með ADHD, aðstandendur, kennarar, þjálfarar og aðrir þeir sem vinna með börnum eða fullorðnum með ADHD eða vilja fræðast um ADHD. Enginn aðgangseyrir og kaffi á könnunni.

sjá nánar á facebook síðu félagsins