Á laugardaginn 30. Nóvember hefði Kolbeinn Aron Ingibjargarson eða Kolli eins og við öll þekktum hann orðið 30 ára. Í tilefni að því ætlar fjölskylda, vinir og ÍBV að halda uppá það á viðeigandi hátt.
Kl 13:30 verður athöfn í stóra salnum í íþróttamiðstöðinni og væri gaman að sjá sem flesta.
Kolli var eitt af andlitum handboltans í eyjum og átti mjög stóran þátt í þeirri uppbyggingu sem deildin gekk í gegnum og kom liðinu á þann stað sem það er í dag.
Hann spilaði 279 leiki fyrir félagið og skoraði 2 mörk.
Honum til heiðurs munum við vígja mynd af honum Kolla okkar.