Framkvæmdastjórn Heilbrigðisstofnunar Suðurlands hefur ákveðið að nýta sér ákvæði í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og breyta vinnufyrirkomulagi sjúkraflutningamanna á Suðurlandi sem snýr að yfirvinnu. Með ákvörðuninni þurfa sjúkraflutningamenn á svæðinu að taka á sig verulega launalækkun.

Fækkuðu sjúkraflutningamönnum fyrr á þessu ári vegna hagræðingar

Í lok síðasta árs greindi fréttastofan frá því að 1. febrúar í ár yrði sjúkraflutningamönnum á Hvolsvelli fækkað um fjóra. Þáverandi forstjóri stofnunarinnar, Herdís Gunnarsdóttir, sagði í samtali við fréttastofu, í desember í fyrra, að það væri gert vegna rekstrarhalla. Þá var þeim fækkað úr tuttugu og sjö í tuttugu og þrjá.

Sjúkraflutningamenn fá greidda yfirvinnu sem nemur fimmtán mínútum í upphafi og lok hverrar vaktar og kallaður er samvistartími. Sú yfirvinna er launaskerðingin sem sjúkraflutningamenn verða fyrir.

Óvíst með ráðningarsamband sé ákvörðunin ekki virt

Forstjóri Heilbrigðisstofnunnar Suðurlands tilkynnti sjúkraflutningamönnum á öllu svæðinu um ákvörðunina í tölvupósti í gær og er vísað í 19. grein laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Það kemur meðal annars fram að hafi breytingarnar í för með sér skert launakjör starfsmanns eða réttindi skuli hann halda óbreyttum launakjörum og réttindum þann tíma sem eftir er af skipunartíma hans í embætti eða jafnlangan tíma og réttur hans til uppsagnarfrests er samkvæmt ráðningarsamningi.

Sjúkraflutningamenn líta á þetta sem hótun. Það er að samþykki þeir ekki breytingarnar verði ráðningarsamningur þeirra ekki endurnýjaður.

Í tölvupósti forstjórans til sjúkraflutningamanna kemur fram að þessi leið sé farinn þar sem samkomulag hafi ekki náðst við þá, samkomulag með þeim hætti sem framkvæmdastjórn heilbrigðisstofnunarinnar hefði kosið. Ákvörðunin sé nauðsynleg og tekin út frá rekstrarlegum grundvelli.

Sjúkraflutningamenn hafa áhyggjur af því að upplýsingaflæði á milli vakta verði ekki tryggt ef samvistartími á milli vaktaskipta verði afnuminn.

Breytingin gerð með innan við sólarhrings fyrirvara

Árni Snorri Valsson, trúnaðarmaður sjúkraflutningamanna á Suðurlandi segir hljóðið í sjúkraflutningamönnum þungt. Hann segir að tilkynningin frá forstjóra heilbrigðisstofnunarinnar í gær hafi einungis verið formsins vegna. Yfirvinnutímarnir hafi þegar verið teknir af þeim. Það hafi verið gert með innan við sólarhrings fyrirvara um síðustu mánaðamót og því hafi þeir mótmælt.

Samkvæmt upplýsingum fréttastofu nemur kjaraskerðingin um hundrað og fimmtíu þúsund krónum á ári í útborguðum launum og því sé um verulega kjaraskerðingu að ræða.

Ekki náðist í Díönu Óskarsdóttur, forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fréttastofu við vinnslu fréttarinnar.

Kjarasamningur sjúkraflutningamanna í aðalstarfi, sem á við um sjúkraflutningamenn á Selfossi, rann út í apríl síðastliðnum og enn sem komið er nýr kjarasamningur ekki í sjónmáli.

Einna mest álag hefur verið á sjúkraflutningamenn á Suðurlandi síðustu ár. Umdæmi þeirra er víðfeðmt og þar hafa mörg af alvarlegustu umferðarslysum síðustu ára orðið. Í ár hafa þeir tekist á við, svo eitthvað sé nefnt, tvö flugslys og alvarleg rútuslys það sem margir slösuðust.

Tekið af Visir.is