Í dag sunnudaginn, 1. desember nk., fyrsta sunnudag í aðventu. Veitir Ofanleitissókn nýju hljóð- og myndkerfi kirkjunnar formlega viðtöku, en kerfið er gjöf til sóknarinnar frá Kvenfélagi Landakirkju.

Kerfið er hið glæsilegasta og mikil bylting frá því sem áður var. Skipt var um allan búnað bæði í kirkju og safnaðarheimili og nú má streyma athöfnum út á internetið svo dæmi sé tekið.

Andrea Atladóttir, formaður sóknarnefndar mun taka við gjöfinni fyrir hönd sóknarinnar