Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur sent frá sér erftirfarandi tilkynningu:
Nú hefur veður versnað talsvert í Vestmannaeyjum og er Björgunarfélag Vestmannaeyja að sinna útköllum víðsvegar um bæinn. Veður hefur versnað mjög mikið út á Eiði og hefur verið tekin ákvörðun hjá Björgunarfélaginu að ekki sé stætt að sinna útköllum þar og því hefur lögregla lokað fyrir alla umferð um Eiðið og biðjum við alla um að hlíta þeim lokunum. Með þeim orðum biðjum við alla um að vera kyrr heima fyrir þar sem ekkert ferðaveður er.